Thursday, March 17, 2011

Hlynur Bæringsson: Eftirsjá íþróttamanns


Þar sem ég hef ekki haft mikinn tíma til þess að blogga undanfarið þá ákvað ég að benda ykkur á einn pistil sem vakti mig til umhugsunar. Ég lofa ykkur hins vegar bloggi innan tíðar, "Það koma tímar það koma ráð." Ég hef frá nægu að segja. ;)


Hlynur Bæringsson er einn besti körfuboltamaður Íslands og leikur nú um stundir sem atvinnumaður í Svíþjóð.  Honum er mikið til lista lagt en skrifaði m.a. eina grein sem fékk mig sérstaklega til að hugsa, fyrir ykkur sem hafið ekki lesið hana ættuð að drífa í því! Þetta er eitthvað sem allir ættu að lesa. Frábær lesning. 

Pistilinn eftir Hlyn->  Hlynur Bæringsson: Eftirsjá íþróttamanns:
"Það voru mörg sumur sem ég gerði nánast ekkert til að verða betri, sumrinu 2002 eyddi ég að horfa á HM í fótbolta, drekkandi fleiri lítra af coke og kaffi en ég kæri mig um að muna eftir, fór þess á milli á böll í Hreðavatnsskála. Ég horfði nánast á hvern einasta leik, en í dag man ég ekki einu sinni hver vann mótið. Árin eftir að ég flutti í Stykkishólm eyddi ég endalausum tíma í að horfa á enska boltann, á sunnudagsmorgnum, mánudagskvöldum og nánast alla leiki sem ég gat. West Ham-Derby í beinni hljómar ekki spennandi en ég missti ekki af því. Ég hef ótal svipuð dæmi, en óþarfi er að telja þau upp, þið skiljið hvað ég á við," segir Hlynur einnig.