Thursday, March 17, 2011

Hlynur Bæringsson: Eftirsjá íþróttamanns


Þar sem ég hef ekki haft mikinn tíma til þess að blogga undanfarið þá ákvað ég að benda ykkur á einn pistil sem vakti mig til umhugsunar. Ég lofa ykkur hins vegar bloggi innan tíðar, "Það koma tímar það koma ráð." Ég hef frá nægu að segja. ;)


Hlynur Bæringsson er einn besti körfuboltamaður Íslands og leikur nú um stundir sem atvinnumaður í Svíþjóð.  Honum er mikið til lista lagt en skrifaði m.a. eina grein sem fékk mig sérstaklega til að hugsa, fyrir ykkur sem hafið ekki lesið hana ættuð að drífa í því! Þetta er eitthvað sem allir ættu að lesa. Frábær lesning. 

Pistilinn eftir Hlyn->  Hlynur Bæringsson: Eftirsjá íþróttamanns:
"Það voru mörg sumur sem ég gerði nánast ekkert til að verða betri, sumrinu 2002 eyddi ég að horfa á HM í fótbolta, drekkandi fleiri lítra af coke og kaffi en ég kæri mig um að muna eftir, fór þess á milli á böll í Hreðavatnsskála. Ég horfði nánast á hvern einasta leik, en í dag man ég ekki einu sinni hver vann mótið. Árin eftir að ég flutti í Stykkishólm eyddi ég endalausum tíma í að horfa á enska boltann, á sunnudagsmorgnum, mánudagskvöldum og nánast alla leiki sem ég gat. West Ham-Derby í beinni hljómar ekki spennandi en ég missti ekki af því. Ég hef ótal svipuð dæmi, en óþarfi er að telja þau upp, þið skiljið hvað ég á við," segir Hlynur einnig.


Tuesday, January 18, 2011

2011

Nýtt ár. Ný byrjun. Gleðilegt 2011!

Ég vil byrja á að óska ykkur öllum gleðilegt nýtt ár og ég vona að það nýja sem hefur gengið í garð verði ykkur gjöfult og ánægjulegt í alla staði.

Tíminn flýgur frá okkur. Mér líður eins og ég hafi verið lítil smástelpa öskrandi og dansandi á Samfés í seinasta mánuði þar sem Páll Óskar sannarlega fangaði hjartað mitt en það er ótrúlegt að það sé í raun ár síðan. Það hefur ótrúlega mikið skéð á þessu frábæra ári sem er að baki. Ég er óendalega þakklát fyrir allt sem hefur hent mig þrátt fyrir að ég hafi líka gert mörg mistök.
Ég fékk frábæra þjálfun í HK og spilaði með þvílíkt góðum leikmönnum og æft undir stjórn frábærra þjálfara sem hafa átt stóran hlut af því að gera mig að þeim leikmanni sem ég er í dag! Ég get ekki sleppt við að nefna Snælandsskóla, þar sem allir vildu einungis það besta fyrir okkur í lífinu. Minn stutti tími í Verzló var svo sannarlega ljúfur! Ég gæti talið endalaust upp! Ég er sjúklega þakklát fyrir fjölskylduna mína og vinina og ég ótrúlegt hvað ég kynntist mikið af nýju og frábæru fólki einnig!

2010 var svo sannarlega gott ár en ég er viss um að 2011 muni bara toppa það.
Aðal málið er bara að gefast aldrei upp. Setja sér markmið og „Impossible is nothing“ . Að finna leiðina að sigri er merki um gott lið. Það skiptir líka máli að finna sjálfan sig og átta sig á því hvað hentar manni best og er best fyrir mann bæði sem manneskju og leikmann.

Ég átti frábær jól á Íslandi. Yndislegt að koma heim til fjölskyldunnar og vinanna. Líka ótrúlegt hvað ég sé allt með öðrum augum. Á leiðinni heim frá flugvellinum fengu Natalía og Þórdís (og mamma auðvitað) örugglega alveg nóg af mér því ég lét eins og ég væri í Dr. Phil endalaust ánægð og þakklát fyrir allt! Haha.. Sama dag og ég flaug hafði ég ákveðið að taka mér stutta lestarferð á McDonalds vel minnst með fjórar töskur í för til þess að kaupa átta McDonalds hamborgara handa strákunum mínum! Sjálf borða ég ekki McDonalds og þegar á staðinn var heitið bað ég sérstaklega um box því ég sagði frá því að ég væri að fara til Íslands með borgaranna með mér í flug haha.. Svo beint af flugvellinum skellti ég mér í IGLÓ, bestu félagsmiðstöðina btw og hitti drengina þar og kom með þessa sveittu borgara sem brögðuðust víst bara eins og glænýjir. Enda McDonalds..
Ég get ekki sagt að ég hafi ekki verið í nógu að snúast þessa 15 daga á Íslandi en það er bara lang skemmtilegast þegar nóg er að gera! Þetta var allavena frábært.
Svo 5. janúar var ferðinni heitið aftur til Noregs. Þar var byrjað af krafti að æfa aftur og 7. jan fór ég í Píp-test og náði 15,8. Ég get allavena sagt að ég hafi verið dauð enda búin að sofa lítið eftir flugferðina og farið eldsnemma á fætur. En ég var sátt með árangurinn minn.
Karen frænka og megababe hehe flutti síðan hingað til Asker helgina eftir að ég kom. Hún býr hjá Atla bróðir sínum í Asker en hann er einmitt að spila með Asker. Karen ætla líka að æfa með Asker.
En Asker er ekki svo langt frá mér svo við erum auðvitað búnar að taka nokkur sleepover og verslunarferðir og svo sannarlega búnar að skemmta okkur mjög vel :D. Svo er hún nátla grimmust og strax farin að veiða fiskana hérna í Noregi. Norðmenn pff.. Veljum íslenskt. Það er alltaf best.

Ég lenti einmitt í því að myndarpiltur sem er einnig bekkjarbróðir minn sagði við mig að hann væri “Mjög hrifinn af mér” þegar ég hafði verið í Noregi í um viku haha og kannski talað við hann örfáu sinnum og þetta var enginn annar en fyrirliði unglingaliðs Stabæk. Haha gaman að því. En Like I said Ísland ftw!

Svo flutti Telma Þrastar úr Aftureldingu hingað um seinustu helgi :) Alveg frábært að hafa svona marga Íslendinga í kringum sig! En hún mun koma til með að æfa með mér í Stabæk :D
Hinn magnaði Ole Gunnar Solskjær

Ég er að æfa um 30 klst á viku, svo það skiptir auðvitað miklu máli að sofa vel og borða rétt. Núna er ég bara að einbeitta mér að því sem skiptir máli, reynslunni og lærdómnum sem ég er að fá hér. Eins og sagt er “Reyndu eins mikið og þú getur til þess að verða góður og þá mun það besta koma til þín.”

Loksins skelli ég inn bloggi, vona að það hafi ekki verið of langt ;) Later
Smá gull í lokin: http://www.youtube.com/watch?v=EkHTsc9PU2A&ob=av2el - Klikkar ekki :D

Thursday, December 16, 2010

jólajólajólajólajóla

Kæru vinir tíminn er fljótur að líða! 5 dagar í Ísland :D og jólafýlingurinn nátla alveg búinn að sogast í taugarnar!
Var að baka Lakkrístoppa á mánudaginn með íslensku lakkrískurli og íslensku rjómasúkkulaði namminamm hehe:)
En ég ætla nú aðeins að fjalla um hvernig allt hefur verið eftir tímaröð:

Ég kem heim frá Tyrklandi á föstudegi og sama dag flýgur Elín Rós yndið mitt hingað til Noregs! Hún var að fara keppa í ungum sýnendum! Svo ég skelli mér auðvitað til Lilleström bæði á laugardag og sunnudag til þess að hitta gerpið ! Mamma hafði látið senda pakka með Elínu og í honum voru crocs <3 sem hún hafði keypt og einhverra hluta vegna var kvittun uppá 10 þús sem fylgdi með hmm ! pottpétt ómeðvitað! Ásamt fullt af fleira dóti, diesel gallabuxur, lakkrískurl, rjomasukkulaði (lakkristoppar nammi) og smá skilaboð frá Glódísi og Natalíu :) Natalía sendi She's the man myndina með haha :D mesta snilldin!

 

hhaha vel á minnst þá fór ég á mína fyrstu hundasýningu erlendis (Elín að sýna á henni)! Risa stór! Shit! Voru eins og fimm fífur (höllinn sem sýningin var í)! og ég er ei að ýkja! Minnir að það hafi verið yfir 60 sýningarhringir!
Það var allavena ótrúlega gaman að kíkja :D en það sem skemmtilegast var að sjálfsögðu að hitta Elínu yndið mitt:* henni gekk rosalega vel komst í topp 6 :D ! þetta var frábært!

Svo skellti ég mér á tónleika með Madcon með Jakobi fyrstu vikuna í des :-) það var fínt!

Í skólanum er búið að vera gaman en samt erfitt líka! Þar sem það eru að koma jól þá er búið að vera mikið fjör og öðruvísi æfingar :) Eins og júdó, dans og körfubolti!
Flestar stelpurnar voru með stelpum og strákarnir með strákum en ég var nátla með stráki haha :-) Samba og Tango! og lærðum líka allan Waka Waka dansinn ;) strákarnir nutu sín vel!!!
dans 3.desember 2010 013.jpg
Svo fórum við í júdó! jimin! Ég er allavena komin með nóg að trixum til þess að negla fólki í gólfið! Ég vildi ekki vera vond við samherja minn og kastaði henni víst svakalega laust og hún alveg "hei Diljá du må bare kaste meg!" 
Og svo fór ég í körfu í dag! Er nátla Lebron James kvennaboltans svo þetta var alls ekkert leiðinlegt! Okei seriously þá eru hæfileikar mínir takmarkaðir í körfu en liðið mitt keppti í úrslitum og svo var leikurinn jafn svo til þess að finna sigurvegara þá var vitakast og tveir valdnir úr hvoru liði og strákarnir eitthvað Diljá þú ferð svo ég og strákur að nafni Jeres fórum! Ég alveg uuh okei.. klúðraði því miður en það var tæpt!

Síðasta helgi var frábær! Ég hitti Hugrúnu og við eyddum deginum saman í Osló, versluðum (í H&M) og kíktum svo að sjálfsögðu á McDonalds! McFlurry stóð fyrir sínu! gaman gaman :)
Svo á sunnudaginn hitti ég íslenska stelpu sem býr hérna í nágrenni við Osló :) Hún heitir Lovísa og er einnig úr Kópavogi! Við hittumst einmitt líka í Osló og jájá ég verslaði ekki koma með einhverja ræðu um að ég sé shopaholic ;) 


Gaman að troða því einnig að ég sofnaði í strætó í dag (y) vaknaði og vissi ekkert hvar ég væri haha! ég man samt eftir að hafa séð stoppustöðina á undan minni og ætlaði að ýta á stopp takkann en svo er bara eins og ég hafi rotast haha :-) en ég komst heim að LOKUM;)

Núna styttist bara með hverjum deginum í að ég komi á klakann! En ég lendi kl 15.45 í kef:D 21 des! Hlakka ekkert smá mikið til :-)

Gleðileg jól öll sömul og takk fyrir allt. Þetta væri ekki hægt án ykkar!

Saturday, December 4, 2010

meira meira um Tyrkland

Eftir hvatningu um að blogga meira þá ætla ég að byrja að segja frá Tyrklandi!
Það var frábært úti í Tyrklandi :) Minnst 25 stiga hiti og mest 30 stiga hiti. Svo get nú ekki kvartað yfir því! Ég lærði heilmikið í fótbolta, æfði 2 sinnum á dag og spilaði 3 leiki :D 

Fyrsta leikinn spiluðum við á móti Tyrknesku strákaliði töpuðu 4-2 en sá leikur gekk samt vel :) Vantaði bara mörkin og ákveðina í okkur! Spilum mjög vel og vorum klárar með boltann.

Annan leikinn spiluðum við á móti Antalya Spor er það lið er í efstu deild í Tyrklandi, var í 5. sæti seinasta seson :)
Ég kom sjálfri mér mjög mikið á óvart sem og öðrum samherjum í þeim leik :) Ég spilaði sem framherji í fyrri hálfleik og skoraði 3 mörk og svo var ég miðvörður í seinni hálfleik! Ég skoraði á 36 sek! Og svo kom frétt um það = http://fotbolti.net/fullStory.php?action=viewStory&id=100727 haha ég vissi ekki einu sinni af henni! Sá að folk var að likea hana á facebook frekar fyndið!

Þriðja leikinn spiluðum við á móti Istanbul, besta liðinu í Tyrklandi en þær flugu frá Istanbul, með þeim fylgdi her myndatökumanna og ljósmyndara! Við vorum frétt í Tyrkneska sjónvarpinu! Uss ! fyrir ykkur sem skiljið tyrknesku: http://yeni.atasehir.bel.tr/videolar.aspx?UST_ID=196  hér  er linkurinn af því :D
Þessi leikur endaði með jafntefli! Sem er ekki slæmt á móti besta liði Tyrklands.
 
Þegar allt er tekið saman þá var þetta fínasta ferð J Var á hinu flottasta hóteli með öllu innifalið og alveg við ströndina svo auðvitað heimsótti maður hana á hverjum degi! Ætli “Pretty nice” lýsi þessari ferð ekki vel. Að spila fótbolta í 30 stiga hita var alls ekki slæmt, maður var bara að tana í leiðinni! Haha ;) Svo bætti ég mig líka nóg í norskunni, enda talaði ég hana 24/7... OG EITT ég fékk STARBUCKS og verslaði og verslaði :D !! víj!! 
Fékk nickið Diljá starbucks hhaha af litla þjálfarnum mínum sem er btw frá Suður-Kóreu, hann er alger steik sem og fleiri! Það var karoke kvöld hérna á hótelinu fer hann ekki upp og syngur eitthvað svakalega væmið lag (vel falskt) og Björn sem er yfir fótboltanum í NTG hann steig líka sín fyrstu spor í söngnum! Þetta var yndislegt og kætti mig allavena, þar sem ég gjörsamlega dó úr hlátri :D 
hahaha þessi er snillingur!!
Við skelltum okkur svo í Körfu á milli æfinga! Ég var nátla bara kölluð Lebron James eftir dágóða skeinun!
Þurftum að læra í 2klst á morgnanna vúhú! Ég er lúðinn fyrir miðju! Þess má geta að ég drakk rúmlega 10 lítra af vatni á dag og var byrjuð að pissa glæru! hehe 2 much information

Ef þið lumið á einhverju skemmtilegu eða hafið einhverjar spurningar þá um að gera að senda á mig línu: dilja_helgad@hotmail.com :) 
Later!


Friday, November 19, 2010

Tyrkia :) !

Þá eru ekki nema 1 mánuður og einn dagur þangað til ég kem til Íslands!
En núna er í Tyrklandi í æfingaferð. Hér er mjög gaman. Basic dagur hjá mér mun vera: morgunmatur, æfing, hádegismatur, sólbað, æfing, kvöldmatur, frítími(versla, kíkja í bæinn o.s.frv.) / fundur.. :) Þetta er fínt, get ekki kvartað undan hitanum en hér er um 25-30° hiti, pretty nice. JETSKI er klárlega ný uppgvötun hjá mér en þetta er klikkað skemmtilegt tæki og já ég óska mér jetski í jólagjöf m&p svo þið getið haft það í huga. :)
Á fimmtudaginn spiluðu við á móti Tyrknesku drengjaliði það gekk ágætlega en þeir sigruðu 4-2. Við eigum svo annan leik núna á mánudaginn, svo það er nóg að gera. haha og eftir þennan leik á móti Tyrkjunum af vinabeiðnirnar og like á myndir verið ófáar.. haha oh my lord

haha svo er ég með þennan japanska/kínverska allavena af Asískum ættum sem aðstoðarþjálfara. Hann er svona 160 á hæð og alltaf að reyna að tala íslensku frekar fyndið. Hann var búinn að vera að reyna spurja mig um Eið Smára Gudjohnsen í 3 daga og það sem kom út úr honum var eitthvað í áttina að "Heiteru gudmunders" æj æj
Svo er maður komin með smá lit og svona sem er ekki beint leiðinlegt, ég sendi ykkur kannski smá brúnku í pósti.
Við verðum hérna í 12 daga, en á föstudaginn næsta þá höldum við "heim" til Noregs. Elín Rós er að koma til Noregs þá svo ég hlakka ekkert smá mikið til að hitta hana. Í Noregi er mikill snjór svo vonandi kemst ég í smá jólaskap enda algert jólabarn og þá verður bakað og bakað :D þeir sem þekkja mig þá kann ég víst ekki að baka, svo það verða einhver vandræði..

Thursday, November 11, 2010

2 vikur liðnar

Viti menn núna er ég í spænsku tíma og skipar kennarinn öllum að búa til blogg, svo því miður ég er byrjuð að blogga! Allir eru að skrifa á spænsku en ég bara so what ég þarf ekkert að læra spænsku svo ég nota að sjálfsögðu fallega móðurmálið !!

Lag í spilun: Botninn up - Erpur
Setning: Mikið er gott að eiga góða fjölskyldu og vini.

Ég ætla að skrifa smávegis um hvernig allt hefur gengið hér..
Miðvikudaginn 27 október hélt för minni til Noregs, ég var mjög heppinn að mamma skyldi fljúga með mér enda þurfti ég hjálp með þessar 7 ferðatöskur sem ég tók með hehe :-)
Ferðin byrjaði snilldarlega þar sem Óli gamli þjálfari flaug með mig og ekki má gleyma því að undir 17 ára landslið karla í handbolta var einnig í fluginu ! En þar mátti finna höfðingja eins og Andra Helga og Bödda og Sigga Verzlinga ! Tær snilld.
Ég var ekki neitt stressuð heldur bara spennt. Um leið og við lentum þá var ég að farast úr spenningi.... SHIT

Fyrstu tvö dagana gisti ég hjá Unnari frænda en hann býr í Röa, í Osló kannski 30 mín frá skólanum... á fimmtudegi daginn eftir að ég kom þá var kom ég fyrst í skólanum! Það var ansi skrautlegt :p
Ég og mamma komum sem sagt inn í skólann og uppá aðra hæð þar sem einhver hópur stráka er í hinum endanum og sjá okkur og eltir okkur á kennarastofuna en þangað mætti ég til þess að hitta yfirþjálfarann og hann sem sér um íþróttaakademíu skólans. Fyndnast í heimi þegar einhverjir guttar eru alltaf að gægjast inn í herbergið en ég var einmitt búinn að fá facebook add frá nokkrum þeirra áður en ég byrjaði haha....
Svo var mér bara úthlutað æfingagalla og þess háttar og haldið var á æfingu! Á minni fyrstu æfingu gekk mjög vel, Veldig bra.. svona eins og norðmenn mundu orða það :D
Síðan á föstudeginum mætti ég bara beint á æfingu (fæ að sofa út fyrstu tvö tímana sem er vanalega kennsla)
Svo seinna á föstudeginum flyt ég inn! Bý hjá yndislegri fjölskyldu í Skui, í Osló svona 10km frá skólanum - ég tek strætó í skólann á morgnanna og þetta er mjög fínt allt saman :-) Ég er með stærra herbergi en heima á Íslandi og hjónarúm hehe ekkert að hata það!

Á laugardaginn var mér og mömmu boðið að fara á að horfa á Stabæk kvenna en þær urðu svo Norskir meistarar! Sigruðu deildina, glæsilegt :) Svo um þessa helgi átti Jakob afmæli og ég hitti Íslendinga :D

frá vinstri: Tinna, Jakob, ég og Siggi :-)

  Ég á Stabæk leikvanginum!                                       
Fyrsta skólavikan var fín :)  Ég æfði á fullu á ýmsan hátt, fór í fullt af hlaupa, hoppu og hraðatestum! Ég kom ágætlega út úr því, svo var ég látin synda 1500 m og svo bara basic fótboltaæfingar að sjálfsögðu :D
Ég er öll að komast inn í málið og hlakka bara til framhaldsins !
Svo er það bara æfingaferð í sólinni til Tyrklands á mánudaginn!! Þetta er paradise :D


http://www.youtube.com/watch?v=BV_GIBUo_Vc     bara svona eitt masterpiece í lokin!