Thursday, December 16, 2010

jólajólajólajólajóla

Kæru vinir tíminn er fljótur að líða! 5 dagar í Ísland :D og jólafýlingurinn nátla alveg búinn að sogast í taugarnar!
Var að baka Lakkrístoppa á mánudaginn með íslensku lakkrískurli og íslensku rjómasúkkulaði namminamm hehe:)
En ég ætla nú aðeins að fjalla um hvernig allt hefur verið eftir tímaröð:

Ég kem heim frá Tyrklandi á föstudegi og sama dag flýgur Elín Rós yndið mitt hingað til Noregs! Hún var að fara keppa í ungum sýnendum! Svo ég skelli mér auðvitað til Lilleström bæði á laugardag og sunnudag til þess að hitta gerpið ! Mamma hafði látið senda pakka með Elínu og í honum voru crocs <3 sem hún hafði keypt og einhverra hluta vegna var kvittun uppá 10 þús sem fylgdi með hmm ! pottpétt ómeðvitað! Ásamt fullt af fleira dóti, diesel gallabuxur, lakkrískurl, rjomasukkulaði (lakkristoppar nammi) og smá skilaboð frá Glódísi og Natalíu :) Natalía sendi She's the man myndina með haha :D mesta snilldin!

 

hhaha vel á minnst þá fór ég á mína fyrstu hundasýningu erlendis (Elín að sýna á henni)! Risa stór! Shit! Voru eins og fimm fífur (höllinn sem sýningin var í)! og ég er ei að ýkja! Minnir að það hafi verið yfir 60 sýningarhringir!
Það var allavena ótrúlega gaman að kíkja :D en það sem skemmtilegast var að sjálfsögðu að hitta Elínu yndið mitt:* henni gekk rosalega vel komst í topp 6 :D ! þetta var frábært!

Svo skellti ég mér á tónleika með Madcon með Jakobi fyrstu vikuna í des :-) það var fínt!

Í skólanum er búið að vera gaman en samt erfitt líka! Þar sem það eru að koma jól þá er búið að vera mikið fjör og öðruvísi æfingar :) Eins og júdó, dans og körfubolti!
Flestar stelpurnar voru með stelpum og strákarnir með strákum en ég var nátla með stráki haha :-) Samba og Tango! og lærðum líka allan Waka Waka dansinn ;) strákarnir nutu sín vel!!!
dans 3.desember 2010 013.jpg
Svo fórum við í júdó! jimin! Ég er allavena komin með nóg að trixum til þess að negla fólki í gólfið! Ég vildi ekki vera vond við samherja minn og kastaði henni víst svakalega laust og hún alveg "hei Diljá du må bare kaste meg!" 
Og svo fór ég í körfu í dag! Er nátla Lebron James kvennaboltans svo þetta var alls ekkert leiðinlegt! Okei seriously þá eru hæfileikar mínir takmarkaðir í körfu en liðið mitt keppti í úrslitum og svo var leikurinn jafn svo til þess að finna sigurvegara þá var vitakast og tveir valdnir úr hvoru liði og strákarnir eitthvað Diljá þú ferð svo ég og strákur að nafni Jeres fórum! Ég alveg uuh okei.. klúðraði því miður en það var tæpt!

Síðasta helgi var frábær! Ég hitti Hugrúnu og við eyddum deginum saman í Osló, versluðum (í H&M) og kíktum svo að sjálfsögðu á McDonalds! McFlurry stóð fyrir sínu! gaman gaman :)
Svo á sunnudaginn hitti ég íslenska stelpu sem býr hérna í nágrenni við Osló :) Hún heitir Lovísa og er einnig úr Kópavogi! Við hittumst einmitt líka í Osló og jájá ég verslaði ekki koma með einhverja ræðu um að ég sé shopaholic ;) 


Gaman að troða því einnig að ég sofnaði í strætó í dag (y) vaknaði og vissi ekkert hvar ég væri haha! ég man samt eftir að hafa séð stoppustöðina á undan minni og ætlaði að ýta á stopp takkann en svo er bara eins og ég hafi rotast haha :-) en ég komst heim að LOKUM;)

Núna styttist bara með hverjum deginum í að ég komi á klakann! En ég lendi kl 15.45 í kef:D 21 des! Hlakka ekkert smá mikið til :-)

Gleðileg jól öll sömul og takk fyrir allt. Þetta væri ekki hægt án ykkar!

Saturday, December 4, 2010

meira meira um Tyrkland

Eftir hvatningu um að blogga meira þá ætla ég að byrja að segja frá Tyrklandi!
Það var frábært úti í Tyrklandi :) Minnst 25 stiga hiti og mest 30 stiga hiti. Svo get nú ekki kvartað yfir því! Ég lærði heilmikið í fótbolta, æfði 2 sinnum á dag og spilaði 3 leiki :D 

Fyrsta leikinn spiluðum við á móti Tyrknesku strákaliði töpuðu 4-2 en sá leikur gekk samt vel :) Vantaði bara mörkin og ákveðina í okkur! Spilum mjög vel og vorum klárar með boltann.

Annan leikinn spiluðum við á móti Antalya Spor er það lið er í efstu deild í Tyrklandi, var í 5. sæti seinasta seson :)
Ég kom sjálfri mér mjög mikið á óvart sem og öðrum samherjum í þeim leik :) Ég spilaði sem framherji í fyrri hálfleik og skoraði 3 mörk og svo var ég miðvörður í seinni hálfleik! Ég skoraði á 36 sek! Og svo kom frétt um það = http://fotbolti.net/fullStory.php?action=viewStory&id=100727 haha ég vissi ekki einu sinni af henni! Sá að folk var að likea hana á facebook frekar fyndið!

Þriðja leikinn spiluðum við á móti Istanbul, besta liðinu í Tyrklandi en þær flugu frá Istanbul, með þeim fylgdi her myndatökumanna og ljósmyndara! Við vorum frétt í Tyrkneska sjónvarpinu! Uss ! fyrir ykkur sem skiljið tyrknesku: http://yeni.atasehir.bel.tr/videolar.aspx?UST_ID=196  hér  er linkurinn af því :D
Þessi leikur endaði með jafntefli! Sem er ekki slæmt á móti besta liði Tyrklands.
 
Þegar allt er tekið saman þá var þetta fínasta ferð J Var á hinu flottasta hóteli með öllu innifalið og alveg við ströndina svo auðvitað heimsótti maður hana á hverjum degi! Ætli “Pretty nice” lýsi þessari ferð ekki vel. Að spila fótbolta í 30 stiga hita var alls ekki slæmt, maður var bara að tana í leiðinni! Haha ;) Svo bætti ég mig líka nóg í norskunni, enda talaði ég hana 24/7... OG EITT ég fékk STARBUCKS og verslaði og verslaði :D !! víj!! 
Fékk nickið Diljá starbucks hhaha af litla þjálfarnum mínum sem er btw frá Suður-Kóreu, hann er alger steik sem og fleiri! Það var karoke kvöld hérna á hótelinu fer hann ekki upp og syngur eitthvað svakalega væmið lag (vel falskt) og Björn sem er yfir fótboltanum í NTG hann steig líka sín fyrstu spor í söngnum! Þetta var yndislegt og kætti mig allavena, þar sem ég gjörsamlega dó úr hlátri :D 
hahaha þessi er snillingur!!
Við skelltum okkur svo í Körfu á milli æfinga! Ég var nátla bara kölluð Lebron James eftir dágóða skeinun!
Þurftum að læra í 2klst á morgnanna vúhú! Ég er lúðinn fyrir miðju! Þess má geta að ég drakk rúmlega 10 lítra af vatni á dag og var byrjuð að pissa glæru! hehe 2 much information

Ef þið lumið á einhverju skemmtilegu eða hafið einhverjar spurningar þá um að gera að senda á mig línu: dilja_helgad@hotmail.com :) 
Later!