Þá eru ekki nema 1 mánuður og einn dagur þangað til ég kem til Íslands!
En núna er í Tyrklandi í æfingaferð. Hér er mjög gaman. Basic dagur hjá mér mun vera: morgunmatur, æfing, hádegismatur, sólbað, æfing, kvöldmatur, frítími(versla, kíkja í bæinn o.s.frv.) / fundur.. :) Þetta er fínt, get ekki kvartað undan hitanum en hér er um 25-30° hiti, pretty nice. JETSKI er klárlega ný uppgvötun hjá mér en þetta er klikkað skemmtilegt tæki og já ég óska mér jetski í jólagjöf m&p svo þið getið haft það í huga. :)
Á fimmtudaginn spiluðu við á móti Tyrknesku drengjaliði það gekk ágætlega en þeir sigruðu 4-2. Við eigum svo annan leik núna á mánudaginn, svo það er nóg að gera. haha og eftir þennan leik á móti Tyrkjunum af vinabeiðnirnar og like á myndir verið ófáar.. haha oh my lord
haha svo er ég með þennan japanska/kínverska allavena af Asískum ættum sem aðstoðarþjálfara. Hann er svona 160 á hæð og alltaf að reyna að tala íslensku frekar fyndið. Hann var búinn að vera að reyna spurja mig um Eið Smára Gudjohnsen í 3 daga og það sem kom út úr honum var eitthvað í áttina að "Heiteru gudmunders" æj æj
Svo er maður komin með smá lit og svona sem er ekki beint leiðinlegt, ég sendi ykkur kannski smá brúnku í pósti.
Við verðum hérna í 12 daga, en á föstudaginn næsta þá höldum við "heim" til Noregs. Elín Rós er að koma til Noregs þá svo ég hlakka ekkert smá mikið til að hitta hana. Í Noregi er mikill snjór svo vonandi kemst ég í smá jólaskap enda algert jólabarn og þá verður bakað og bakað :D þeir sem þekkja mig þá kann ég víst ekki að baka, svo það verða einhver vandræði..
No comments:
Post a Comment
Choose Commennt as Name/URL .. Veljið hérna fyrir neðan comment as Name/URL :D