Kæru vinir tíminn er fljótur að líða! 5 dagar í Ísland :D og jólafýlingurinn nátla alveg búinn að sogast í taugarnar!
Var að baka Lakkrístoppa á mánudaginn með íslensku lakkrískurli og íslensku rjómasúkkulaði namminamm hehe:)
En ég ætla nú aðeins að fjalla um hvernig allt hefur verið eftir tímaröð:
Ég kem heim frá Tyrklandi á föstudegi og sama dag flýgur Elín Rós yndið mitt hingað til Noregs! Hún var að fara keppa í ungum sýnendum! Svo ég skelli mér auðvitað til Lilleström bæði á laugardag og sunnudag til þess að hitta gerpið ! Mamma hafði látið senda pakka með Elínu og í honum voru crocs <3 sem hún hafði keypt og einhverra hluta vegna var kvittun uppá 10 þús sem fylgdi með hmm ! pottpétt ómeðvitað! Ásamt fullt af fleira dóti, diesel gallabuxur, lakkrískurl, rjomasukkulaði (lakkristoppar nammi) og smá skilaboð frá Glódísi og Natalíu :) Natalía sendi She's the man myndina með haha :D mesta snilldin!
hhaha vel á minnst þá fór ég á mína fyrstu hundasýningu erlendis (Elín að sýna á henni)! Risa stór! Shit! Voru eins og fimm fífur (höllinn sem sýningin var í)! og ég er ei að ýkja! Minnir að það hafi verið yfir 60 sýningarhringir!
Það var allavena ótrúlega gaman að kíkja :D en það sem skemmtilegast var að sjálfsögðu að hitta Elínu yndið mitt:* henni gekk rosalega vel komst í topp 6 :D ! þetta var frábært!
Svo skellti ég mér á tónleika með Madcon með Jakobi fyrstu vikuna í des :-) það var fínt!
Í skólanum er búið að vera gaman en samt erfitt líka! Þar sem það eru að koma jól þá er búið að vera mikið fjör og öðruvísi æfingar :) Eins og júdó, dans og körfubolti!
Flestar stelpurnar voru með stelpum og strákarnir með strákum en ég var nátla með stráki haha :-) Samba og Tango! og lærðum líka allan Waka Waka dansinn ;) strákarnir nutu sín vel!!!
Svo fórum við í júdó! jimin! Ég er allavena komin með nóg að trixum til þess að negla fólki í gólfið! Ég vildi ekki vera vond við samherja minn og kastaði henni víst svakalega laust og hún alveg "hei Diljá du må bare kaste meg!"
Og svo fór ég í körfu í dag! Er nátla Lebron James kvennaboltans svo þetta var alls ekkert leiðinlegt! Okei seriously þá eru hæfileikar mínir takmarkaðir í körfu en liðið mitt keppti í úrslitum og svo var leikurinn jafn svo til þess að finna sigurvegara þá var vitakast og tveir valdnir úr hvoru liði og strákarnir eitthvað Diljá þú ferð svo ég og strákur að nafni Jeres fórum! Ég alveg uuh okei.. klúðraði því miður en það var tæpt!
Síðasta helgi var frábær! Ég hitti Hugrúnu og við eyddum deginum saman í Osló, versluðum (í H&M) og kíktum svo að sjálfsögðu á McDonalds! McFlurry stóð fyrir sínu! gaman gaman :)

Svo á sunnudaginn hitti ég íslenska stelpu sem býr hérna í nágrenni við Osló :) Hún heitir Lovísa og er einnig úr Kópavogi! Við hittumst einmitt líka í Osló og jájá ég verslaði ekki koma með einhverja ræðu um að ég sé shopaholic ;)
Gaman að troða því einnig að ég sofnaði í strætó í dag (y) vaknaði og vissi ekkert hvar ég væri haha! ég man samt eftir að hafa séð stoppustöðina á undan minni og ætlaði að ýta á stopp takkann en svo er bara eins og ég hafi rotast haha :-) en ég komst heim að LOKUM;)
Gaman að troða því einnig að ég sofnaði í strætó í dag (y) vaknaði og vissi ekkert hvar ég væri haha! ég man samt eftir að hafa séð stoppustöðina á undan minni og ætlaði að ýta á stopp takkann en svo er bara eins og ég hafi rotast haha :-) en ég komst heim að LOKUM;)
Núna styttist bara með hverjum deginum í að ég komi á klakann! En ég lendi kl 15.45 í kef:D 21 des! Hlakka ekkert smá mikið til :-)
Gleðileg jól öll sömul og takk fyrir allt. Þetta væri ekki hægt án ykkar!
Einn yndislegur gullmoli í lokin: http://www.youtube.com/watch?v=6ZRxsB9bavU&feature=related






