Thursday, November 11, 2010

2 vikur liðnar

Viti menn núna er ég í spænsku tíma og skipar kennarinn öllum að búa til blogg, svo því miður ég er byrjuð að blogga! Allir eru að skrifa á spænsku en ég bara so what ég þarf ekkert að læra spænsku svo ég nota að sjálfsögðu fallega móðurmálið !!

Lag í spilun: Botninn up - Erpur
Setning: Mikið er gott að eiga góða fjölskyldu og vini.

Ég ætla að skrifa smávegis um hvernig allt hefur gengið hér..
Miðvikudaginn 27 október hélt för minni til Noregs, ég var mjög heppinn að mamma skyldi fljúga með mér enda þurfti ég hjálp með þessar 7 ferðatöskur sem ég tók með hehe :-)
Ferðin byrjaði snilldarlega þar sem Óli gamli þjálfari flaug með mig og ekki má gleyma því að undir 17 ára landslið karla í handbolta var einnig í fluginu ! En þar mátti finna höfðingja eins og Andra Helga og Bödda og Sigga Verzlinga ! Tær snilld.
Ég var ekki neitt stressuð heldur bara spennt. Um leið og við lentum þá var ég að farast úr spenningi.... SHIT

Fyrstu tvö dagana gisti ég hjá Unnari frænda en hann býr í Röa, í Osló kannski 30 mín frá skólanum... á fimmtudegi daginn eftir að ég kom þá var kom ég fyrst í skólanum! Það var ansi skrautlegt :p
Ég og mamma komum sem sagt inn í skólann og uppá aðra hæð þar sem einhver hópur stráka er í hinum endanum og sjá okkur og eltir okkur á kennarastofuna en þangað mætti ég til þess að hitta yfirþjálfarann og hann sem sér um íþróttaakademíu skólans. Fyndnast í heimi þegar einhverjir guttar eru alltaf að gægjast inn í herbergið en ég var einmitt búinn að fá facebook add frá nokkrum þeirra áður en ég byrjaði haha....
Svo var mér bara úthlutað æfingagalla og þess háttar og haldið var á æfingu! Á minni fyrstu æfingu gekk mjög vel, Veldig bra.. svona eins og norðmenn mundu orða það :D
Síðan á föstudeginum mætti ég bara beint á æfingu (fæ að sofa út fyrstu tvö tímana sem er vanalega kennsla)
Svo seinna á föstudeginum flyt ég inn! Bý hjá yndislegri fjölskyldu í Skui, í Osló svona 10km frá skólanum - ég tek strætó í skólann á morgnanna og þetta er mjög fínt allt saman :-) Ég er með stærra herbergi en heima á Íslandi og hjónarúm hehe ekkert að hata það!

Á laugardaginn var mér og mömmu boðið að fara á að horfa á Stabæk kvenna en þær urðu svo Norskir meistarar! Sigruðu deildina, glæsilegt :) Svo um þessa helgi átti Jakob afmæli og ég hitti Íslendinga :D

frá vinstri: Tinna, Jakob, ég og Siggi :-)

  Ég á Stabæk leikvanginum!                                       
Fyrsta skólavikan var fín :)  Ég æfði á fullu á ýmsan hátt, fór í fullt af hlaupa, hoppu og hraðatestum! Ég kom ágætlega út úr því, svo var ég látin synda 1500 m og svo bara basic fótboltaæfingar að sjálfsögðu :D
Ég er öll að komast inn í málið og hlakka bara til framhaldsins !
Svo er það bara æfingaferð í sólinni til Tyrklands á mánudaginn!! Þetta er paradise :D


http://www.youtube.com/watch?v=BV_GIBUo_Vc     bara svona eitt masterpiece í lokin!

3 comments:

  1. vííí komin með blogg eins og ég sagði þér! líst á þig :D
    gaman að heyra þetta í svona tímaröð, haha eltu þeir ykkur upp á skrifstofu? þetta var ég ekki búin að heyra ahaha!
    Vertu síðan dugleg að blogga, verður gaman að fylgjast með þér :D
    - Natalía

    ReplyDelete
  2. æðislegt að heyra að allt gengur vel og að þú skemmtir þér vel þarna úti diljá mín! :D hlakka til að fá að lesa meira um þetta ævintýri þitt:P..mikið sakn hérna meginn(K) get ekki beðið eftir því að fá að sjá þig í desember!!!:-D
    LOVELOVELOVE YOU! (L)<3

    ReplyDelete
  3. aw takk mínar yndislegustu! :D haha já Natalía fyrsta daginn, verð að segja að það var svolítið ego kick :p
    já kem heim 21 des!! hlakka til að knúsa ykkur ástir<3<3

    ReplyDelete

Choose Commennt as Name/URL .. Veljið hérna fyrir neðan comment as Name/URL :D